Þakkir og jólakveðja

Minjasafn Austurlands
þakkar fyrir samstarf og
skemmtilegar samverustundir
á árinu.
Bestu óskir um
gleðileg jól og
farsælt komandi ár!
Jólagleði á safninu
Þökkum gestum okkar fyrir komuna á opnunardegi jólakúlusýningarinnar laug.3.des.! Nokkrar færar handavinnukonur á Egilsstöðum og Seyðisfirði lánuðu kúlur á sýninguna sem stendur fram að jólum.
Gleði ríkti í Safnahúsinu á laugardeginum þótt ekki væru margir gestir. Boðið var upp á vöfflur og smávegis föndur, jólabingó með Kertasníki og að sjálfsögðu skoðuðu allir fjölbreytilegar jólakúlur og kort sem varðveitt eru hjá Ljósmyndasafni Austurlands. Kortin sem hér eru til sýnis eru úr tveimur söfnum: safni Ólafs Stefánssonar og Kristínar Gunnlaugsdóttur Oddsen frá Víðhóli, Fjöllum og safni Aðalsteins Bjarnasonar frá Höfða í Vallahreppi.
Hér fyrir neðan getur þú smellt á tenglana og séð myndir.
ýmsar jólakúlur jólakúlur o.fl.
Kertasníkir í stuði jólakort í skáp 3.hæð




