Fornleifauppgröftur á Egilsstöðum!!!
Nýtt verkefni í tengslum við fornleifar er komið af stað í safnfræðslu minjasafnsins. Hlusta máá skemmtilega umfjöllun í lok svæðisfréttunum á RÁS 2 mið.27.maí hér. 
Nemendum úr 6.-10.bekk er boðið að koma í fámennum hópum og fræðast aðeins um fornleifar á nýju sýningu safnsins Dauðir rísa. Þar skoða þeir beinagrindur o.fl. Síðan skella þeir sér í vesti safnsins og leika fornleifafræðinga þar sem áhersla er lögð á aðferðir við uppgröft, mælingar og skráningar. Auk þess læra nemendur að sjálfsögðu ýmislegt um þá hluti sem þeir finna.
