Um fræðslu framhaldsskólanema
Skólahópar, stórir sem smáir eru velkomnir á safnið. Í dag sníðum við heimsóknina að þörfum hvers hóps fyrir sig en næsta vetur, 2008-2009, er fyrirhugað að semja námsefni og skipuleggja fræðslustarf fyrir grunnskóla enn betur. Mun sérstakur safnkennari hafa það verkefni með höndum.
Heimsókn austfirskra leikskólakennara
Rúmlega fjörtíu konur, leikskólakennarar víðsvegar af Austurlandi, hittumst á Minjasafninu núna í eftirmiðdaginn. Þær fengu leiðsögn um grunnsýninguna og snæddu að því loknu samlokur frá Gistihúsinu á Egilsstöðum.
