Á næstunni

Orkering-3ja kvölda framhaldsnámskeið
08. Mar. 2012 Kl. 17:00 - 19:00
Orkering-3ja kvölda framhaldsnámskeið
15. Mar. 2012 Kl. 17:00 - 19:00
Orkering-3ja kvölda framhaldsnámskeið
22. Mar. 2012 Kl. 17:00 - 19:00

Almennir viðburðir

February 2012
S M T W T F S
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 1 2 3

Jaðar ímyndunaraflsins

Á MÖRKUM VERULEIKANS. ,,SÝNIR: JAFNVÆGI Á VILLIGÖTUM"

Í ys og þys nútímans gleymum við oft að líta í kringum okkur og gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn. Á sýningunni the egde of  The imagination “Glints; OFF TRACK, KEEPING BALANCE”, takast fjórir listamenn á við það að setja upp safn þar sem finna má sýnishorn af forvitni og hrifningu huldufólksins á mannheimum og tilraunum þeirra til að halda tengslum við mannfólkið og að falla ekki í gleymsku.

Listrænn stjórnandi verkefnisins er Halldóra Malín Pétursdóttir leikari sem starfað hefur í fjölmörgum verkefnum á Austurlandi og víðar síðustu ár.

Read more...

Endurfundir

BarbaraSýningin ENDURFUNDIR stóð í Myndasal Þjóðminjasafns Íslands 2009-2010 og fjallaði um fornleifarannsóknir sem styrktar voru af Kristnihátíðarsjóði árin 2001–2005. Tilkoma sjóðsins markaði tímamót í fornleifarannsóknum hér á landi og í sýningunni var fjallað um rannsóknir á Gásum, Hólum, Keldudal, Kirkjubæjarklaustri, Reykholti, Skálholti, Skriðuklaustri og á Þingvöllum.

Skriðuklausturshluta sýningarinnar er nú búið að setja upp í Minjasafni Austurlands.

Read more...

Ljóðabærinn Egilsstaðir

hkon_1_minni.jpg

Minjasafn Austurlands og Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs hleypa nú af stokkunum, í fyrsta en vonandi ekki síðasta sinn, Ljóðabænum Egilsstaðir sem er verkefni sem felst í því að á húsveggi á Egilsstöðum, í Fellabæ og annars staðar á Fljótsdalshéraði eru sett upp ljóð. Í fyrsta skiptið ákváðum við að einbeita okkur að einu skáldi og ekki leið á löngu þar til nafn Hákonar Aðalsteinssonar varð ofan á .Hákon fæddist á Vaðbrekku í Hrafnkelsdal 13. júlí 1935 og voru foreldrar hans þau Aðalsteinn Jónsson bóndi og Ingibjörg Jónsdóttir húsmóðir. Hann vann fjölbreytt störf um ævina, sem vélstjóri á sjó, við ökukennslu og bifreiðaakstur og þá var hann lengi lögregluþjónn á Egilsstöðum og á Húsavík. Hann fluttist að Húsum í Fljótsdal árið 1992, gerðist skógarbóndi og rak þar ferðaþjónustu ásamt konu sinni, Sigrúnu Benediktsdóttur. Árið 2006 seldu þau hjónin jörðina og fluttust til Egilsstaða. Hákon lést eftir erfið veikindi í mars 2009 á 74. aldursári.Hákon var landsþekktur hagyrðingur, margar vísur eftir hann orðið fleygar og lög samin við kvæði hans. Af sjö bókum hans eru þrjár ljóðabækur. Ég ætla ekki að þykjast vera neinn sérfræðingur í kveðskap Hákonar en í fljótu bragði sýnist mér hægt að skipta ljóðum hans í nokkra flokka, af þeim mætti nefna tækifærisljóð, náttúruljóð, gamanvísur og rómantík. Við reyndum að velja ljóð úr hverjum „flokki" til að sýna fjölbreytileika skáldskapar hans. Þá lék hann sér að mismunandi bragarháttum og reyndum við einnig að gera því skil. Hér inni í Safnahúsinu er eitt erindi úr Konungsdrápu hans sem hann flutti fyrir Noregskonung til að mótmæla Kárahnjúkavirkjun.

Sigrún eiginkona hans hjálpaði okkur mikið við valið enda þekkir hún hans höfundarverk betur en við sem komum að undirbúningi verkefnisins. En stærstan þátt þar eiga þær Ingunn Þráinsdóttir og Karen Erla Erlingsdóttir auk mín. Um prentun og uppsetningu sá Björgvin hjá Bara snilld ehf. Það var okkur mikið gleðiefni hve vel húseigendur tóku í beiðni okkar um að fá að setja upp ljóð á húsveggi þeirra, án þeirra stuðnings hefði verkefnið ekki getað orðið að veruleika.

Hér fyrir neðan má skoða ljóðin og hvar þau munu birtast. Sum eru nú þegar komin á húsveggi og önnur munu verða hengd upp á næstu dögum.

Read more...

Ljóðabærinn Egilsstaðir 2010

hkon_1_minni.jpgÍ dag hleypum viðaf stokkunum, vonandi í fyrsta en ekki síðasta sinn, verkefni sem við höfum kosið að kalla Ljóðabærinn Egilsstaðir. Hugmyndin kviknaði í fyrra en þá var sett upp sýning hér í safninu sem hét Ást í 100 ár. Meðal þess sem við gerðum þá var að setja upp ástarljóð Páls Ólafssonar á þrjá húsveggi hér í bæ. Þetta mæltist mjög vel fyrir og margir höfðu orð á því hve þetta lífgaði uppá bæjarmyndina og væri skemmtilegt.

Read more...

Fræðsla

February 2012
S M T W T F S
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 1 2 3

Teljari

Articles View Hits
146456
woolandsheepbanner.jpg

Minjasafn Austurlands, Laufskógum 1, 700 Egilsstaðir - Sími: 471-1412 - Fax: 471-1452