Á næstunni

No events

Almennir viðburðir

May 2012
S M T W T F S
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2

Endurfundir

BarbaraSýningin ENDURFUNDIR stóð í Myndasal Þjóðminjasafns Íslands 2009-2010 og fjallaði um fornleifarannsóknir sem styrktar voru af Kristnihátíðarsjóði árin 2001–2005. Tilkoma sjóðsins markaði tímamót í fornleifarannsóknum hér á landi og í sýningunni var fjallað um rannsóknir á Gásum, Hólum, Keldudal, Kirkjubæjarklaustri, Reykholti, Skálholti, Skriðuklaustri og á Þingvöllum.

Skriðuklausturshluta sýningarinnar er nú búið að setja upp í Minjasafni Austurlands.

Frekari upplýsingar má nálgast hér fyrir neðan um sýninguna:

Endurfundasýning Þjóðminjasafnsins

logo þjóðminjasafn


Skriðuklaustur – Híbýli helgra manna er fornleifafræðileg rannsókn sem hófst árið 2002 en forkönnun hafði farið fram á staðnum árið 2000. Rannsóknin er með aðsetur á Þjóðminjasafni Íslands.

Markmiðið með verkefninu er að rannsaka rústir Skriðuklausturs með fornleifauppgreftri í þeim tilgangi að kanna hvort byggingar og starfsemi þess hafi greint sig frá öðrum samtíða kaþólskum klaustrum í Evrópu, líkt og löngum hefur verið talið.

Fornleifauppgröftur á rústum Skriðuklausturs í Fljótsdal hefur staðið yfir frá sumri 2002 en með honum hefur tekist að afla mikilvægra gagna sem nauðsynleg eru til áframhaldandi rannsókna á klaustrum og klausturhaldi hérlendis.

Ljóst er að bygging Skriðuklausturs bar svipmót annarra klausturbygginga í Evrópu en hún samanstóð af þyrpingu vistarvera, kapellu og veglegri kirkju sem byggð voru við skýrt afmarkaðan klausturgarð með brunni fyrir miðju. Hlutverk Skriðuklausturs virðist einnig hafa verið sambærilegt við það sem var í öðrum kaþólskum klaustrum erlendis. Í klausturgarðinum á Skriðu fór fram ræktun mat- og lækningajurta en garðyrkja var iðulega mikil og fjölbreytt í öðrum evrópskum klaustrum. Þar var jarðað en af þeim beinagrindum sem þar hafa grafnar fram má ráða að í Skriðuklaustri hafi verið rekinn spítali, enda var líkn sjúkra og fátækra eitt helsta hlutverk kaþólskrar kirkju í evrópskum samfélögum. Kapellan hefur verið nýtt til daglegs bænahalds og tíðagjörða reglubræðra en klausturkirkjan sjálf notuð fyrir almennar guðsþjónustur. Útlit kaþólskra klaustra í Evrópu allri mótaðist að líkindum fyrst og fremst af hlutverkum þeirra og verkefnum en þau voru innhverf bænasetur og lokuð frá hinum veraldlega umheimi þrátt fyrir jarðneska tilvist þeirra sem þar höfðust við.

Skriðuklausturrannsóknir

Fræðsla

May 2012
S M T W T F S
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2

Teljari

Articles View Hits
154077
woolandsheepbanner.jpg

Minjasafn Austurlands, Laufskógum 1, 700 Egilsstaðir - Sími: 471-1412 - Fax: 471-1452