Á næstunni

No events

Almennir viðburðir

May 2012
S M T W T F S
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2

Jaðar ímyndunaraflsins

Á MÖRKUM VERULEIKANS. ,,SÝNIR: JAFNVÆGI Á VILLIGÖTUM"

Í ys og þys nútímans gleymum við oft að líta í kringum okkur og gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn. Á sýningunni the egde of  The imagination “Glints; OFF TRACK, KEEPING BALANCE”, takast fjórir listamenn á við það að setja upp safn þar sem finna má sýnishorn af forvitni og hrifningu huldufólksins á mannheimum og tilraunum þeirra til að halda tengslum við mannfólkið og að falla ekki í gleymsku.

Listrænn stjórnandi verkefnisins er Halldóra Malín Pétursdóttir leikari sem starfað hefur í fjölmörgum verkefnum á Austurlandi og víðar síðustu ár.

Listamennirnir koma frá Austurlandi, Donegal á Írlandi, Vesterålen í Noregi. Þau hafa mismunandi reynslu og menntun í listsköpun sem tvinnast saman í þessu verkefni.

Anja Veronica Hansen er 29 ára textíllistamaður frá Noregi. Hún er með BA gráðu í silkiþrykki og hefur unnið við leikmyndagerð, búninga og sviðslistir. Hlín Davíðsdóttir er fædd árið 1982 og uppalin á Eskifirði. Hún útskrifaðist frá Edinburgh College of Art árið 2007 með BA gráðu í teiknimyndagerð. Hún er búsett í Skotlandi þar sem hún hefur unnið að gerð teiknimynda í fullri lengd sem og sjálfstætt.

Maria McKinney dvaldi í gestavinnustofu Red Stables sem upprennandi listmaður ársins 2009 og í framhaldi af því í Banff centre í Kanada. Hún hefur sýnt víðs vegar á Írlandi frá 2004, bæði á einkasýningum sem á samsýningum. Verk hennar má finna í OPW, ACNI, Bank of Ireland sem og í einkaeigu. Hún fékk viðurkenningu listaráðsins (Arts Council) árið 2010 og er í dag meðlimur í Broadstone Studios í Dublin.

Páll Ivan hefur komið víða við í tónlistarlífi hins vestræna heims sem tónskáld og flytjandi en leggur nú alla sína orku í að verða eitthvað annað og meira.

Verkefnið Á MÖRKUM VERULEIKANS er síðasta sýningin í samstarfsverkefni sem ber nafnið EDGES og er m.a. ætlað að efla svæðisvitund í alþjóðlegu samhengi og mynda tengslanet milli listamanna af yngri kynslóðinni. Meginmarkmið þess er að leita nýrra leiða til að tengja saman menningararf og samtímalist, bæði innan svæða og milli þessara þriggja strandhéraða. Að verkefninu standa menningarráðin á Austurlandi, í Donegal á Írlandi og Vesterålen í Noregi. Í kjarna verkefnisins eru þrjár vinnustofur listamanna í samvinnu við söfn á hverju svæði fyrir sig. Hver vinnustofa kannar eitt jaðartengt þema: Jaðar bryggjunnar í Vesterålen, Jaðar hafsins í Donegal og Jaðar ímyndunaraflsins hér á Íslandi.

Vinnustofurnar í Noregi og á Írlandi fóru fram á síðasta ári. Danssýningin The Edge of the Pier var í Vesterålen og í Donegal var útkoman tónverkið The Edge of the Sea.

Samstarfsaðilar eru Minjasafn Austurland, Fjarðabyggð og menningarráð Austurlands, Vesterålen og Donegal. Styrktaraðilar eru  Nordisk Kulturfond, SÚN (Samband útgerðaramanna á Neskaupstað ) og Alcoa.

Fræðsla

May 2012
S M T W T F S
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2

Teljari

Articles View Hits
154078
woolandsheepbanner.jpg

Minjasafn Austurlands, Laufskógum 1, 700 Egilsstaðir - Sími: 471-1412 - Fax: 471-1452