Skip to content
Þú er hér: Heim arrow Ljóðabærinn Egilsstaðir
Ljóðabærinn Egilsstaðir Prenta Rafpóstur
fimmtudagur, 17 júní 2010

hkon_1_minni.jpg

 

Minjasafn Austurlands og Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs hleypa nú af stokkunum, í fyrsta en vonandi ekki síðasta sinn, Ljóðabænum Egilsstaðir sem er verkefni sem felst í því að á húsveggi á Egilsstöðum, í Fellabæ og annars staðar á Fljótsdalshéraði eru sett upp ljóð.  Í fyrsta skiptið ákváðum við að einbeita okkur að einu skáldi og ekki leið á löngu þar til nafn Hákonar Aðalsteinssonar varð ofan á .Hákon fæddist á Vaðbrekku í Hrafnkelsdal 13. júlí 1935 og voru foreldrar hans þau Aðalsteinn Jónsson bóndi og Ingibjörg Jónsdóttir húsmóðir. Hann vann fjölbreytt störf um ævina, sem vélstjóri á sjó, við ökukennslu og bifreiðaakstur og þá var hann lengi lögregluþjónn á Egilsstöðum og á Húsavík. Hann fluttist að Húsum í Fljótsdal árið 1992, gerðist skógarbóndi og rak þar ferðaþjónustu ásamt konu sinni, Sigrúnu Benediktsdóttur. Árið 2006 seldu þau hjónin jörðina og fluttust til Egilsstaða. Hákon lést eftir erfið veikindi í mars 2009 á 74. aldursári.Hákon var landsþekktur hagyrðingur, margar vísur eftir hann orðið fleygar og lög samin við kvæði hans. Af sjö bókum hans eru þrjár ljóðabækur. Ég ætla ekki að þykjast vera neinn sérfræðingur í kveðskap Hákonar en í fljótu bragði sýnist mér hægt að skipta ljóðum hans í nokkra flokka, af þeim mætti nefna tækifærisljóð, náttúruljóð, gamanvísur og rómantík. Við reyndum að velja ljóð úr hverjum „flokki" til að sýna fjölbreytileika skáldskapar hans. Þá lék hann sér að mismunandi bragarháttum og reyndum við einnig að gera því skil. Hér inni í Safnahúsinu er eitt erindi úr Konungsdrápu hans sem hann flutti fyrir Noregskonung til að mótmæla Kárahnjúkavirkjun.

Sigrún eiginkona hans hjálpaði okkur mikið við valið enda þekkir hún hans höfundarverk betur en við sem komum að undirbúningi verkefnisins. En stærstan þátt þar eiga þær Ingunn Þráinsdóttir og Karen Erla Erlingsdóttir auk mín. Um prentun og uppsetningu sá Björgvin hjá Bara snilld ehf. Það var okkur mikið gleðiefni hve vel húseigendur tóku í beiðni okkar um að fá að setja upp ljóð á húsveggi þeirra, án þeirra stuðnings hefði verkefnið ekki getað orðið að veruleika.

Hér fyrir neðan má skoða ljóðin og hvar þau munu birtast. Sum eru nú þegar komin á húsveggi og önnur munu verða hengd upp á næstu dögum. 

 

EGILSSTAÐIR

Arion banki
Ég finn að þú ert frábær kona
frá þér leggur ást og hlýju.
Aska minna völtu vona
verður aftur glóð að nýju
 
Bæjarskrifstofur
Mótdræg er gæfan og misskift sú náð
sem margir í lífinu finna.
Enginn sér fyrir þann ójafna þráð
sem örlaganornirnar spinna.
 
Flugstöðin
Nú sé ég vorið læðast yfir landið
lyngið fer að hreyfa sig í mónum
uppi í hlíðum eyðist þokubandið
aldan stígur nýjan dans á sjónum.
...
Sumarljóðin kliða kynngimögnuð
í kvöldsins eldi logar sólarbálið.
Ég finn í brjósti hljóðan hlýjan fögnuð
ég hlakka til að vakna í fyrramálið.
 
Hlymsdalir
Sjálfslýsing
Ég er mjúkur, hægur , hlýr,
hefi kosti þráða.
Undirgefni í mér býr
ef ég fæ að ráða.
 
Hótel Hérað
Áfram stöðugt stundin líður
starfið mótar vegferð langa
eftir flestum ellin bíður
yngri menn í verkin ganga.
 
Þó að mannsins frægð og frami
fyrnist þegar um er liðið,
aldrei kemur aftur sami
einstaklingur fram á sviðið.
 
Íslandspóstur
Fölna heiðar, hóll og laut,
haustsins litur breiðist yfir lönd.
Fuglar vorsins fljúga á braut,
fossinn hylja klakabönd.
 
Landsbankinn
Viljirðu þekkur þylja,
þjóðum boðskap í ljóði.
Gleðja heyranda í geði,
gylla með orðsins snilli.
Fléttaðu rími réttu,
raðaðu stuðlum hraður.
Láttu hugljúfra hátta,
hrynjandi undir dynja.
 
Minjasafn Austurlands
Úr Konungsdrápu
Fljótt munu verða
færðar til auðnar
merkar vinjar
af manns völdum.
Lönd munu spillast,
lón mikil
hylja sléttur
og holt gróin.
 
Nían
Sveinbjörn Beinteinsson d. 24/12 1993
Lúta höfði
landsins vættir.
Vindar kyrrast
vikna klettar.
Sær dynur
með sorgarómi,
lind stein
laugar tárum.
 
Samkaup
Skýin við fjallsbrúnir bylgjast sem perlur á bandi
birtan skrýðir þau allskonar töframyndum.
Þau sigla í röð framhjá svipmiklum fjallatindum
sólríkur dagur er risinn á Austurlandi.
 
Sentrum
Ég yrki til þín
Þú ert óræð eins og draumur
alltaf fersk og ný
frá þér liggur ljúfur straumur
leyniþráðum í.
Viðmót þitt á vissan máta
vekur spurningar
en þú ert eins og glettin gáta
gefur aldrei svar.
 
Það er líkt og ljóðsins kraftur
leiði út frá þér
mynd þín kemur aftur, aftur
upp í huga mér.
Ennþá lifir gamla glóðin
glampi augna skín
einlægustu ástarljóðin
yrki ég til þín.
 
Shellskálinn
Nú er vor um veröld alla,
vaknar gróðurinn.
Óðum bráðna fannir fjalla,
fossar lækurinn.
 
Sláturhúsið
Ég laðast að ljóðunum þínum
þau lokka fram andann í mér
kveikjan að kvæðunum mínum
kemur oft beint frá þér.
 
Sundlaugin
Húsdýrin
Lukka baular lágum rómi,
liggur úti á bakka.
„Í mínum spena er mjólk og rjómi,
matur fyrir krakka.“
 
Læðist refur lipur, nettur,
löng er kló á fæti.
Áfram skokkar loðinn, léttur,
leitar sér að æti.
 
Ærslast glöð á fótum fráum
folöldin í haga,
gæða sér á grænum stráum
og geyma í sínum maga.
 
Léttum fótum geitin gráa
gengur fjallið bláa,
klifrar með sinn kiðling smáa
klettariðið háa.
 
Litla kisa létt á fæti
læðist fram með húsum
forðast bæði ljós og læti,
leitar eftir músum.
 
Stundum þegar geðið grátt
gengur allt úr lagi,
öskrað get ég ógnarhátt
eins og naut í flagi.
 
Topphlutir/Vaskur
Eflaust fellur allt úr hor
illa flestum gengur,
ef að þetta vinstra vor
varir mikið lengur.
 
Valaskjálf
Tíu ára brúðkaupsafmæli
Oftast mun það allvel sjást
svo ekki verður hrakið
að tíu ára taumlaus ást
tekur vel í bakið.
 
Verkfræðistofa Austurlands
Bóndinn er fúll í bælinu heima
brúnirnar hnyklast sem óveðursský.
Kýrin er yxna, kötturinn breima
og kerlingarvargurinn ólétt á ný.
 
Verkís
Hreindýr
Uppi í grónum faðmi fjalla
ferskur blærinn strýkur hjalla.
Endurspegla ótal lindir
öræfanna kynjamyndir.
Stoltur hreinninn stendur vörð
um stóra hjörð.
 
Við háa kletta, hyldjúp síki
heiðarlandsins konungsríki.
Reikar frjáls um fjallasali
fögur hjörð um eyðidali.
Gengur létt um grænan svörð
og gróna jörð.
 
 
 
hkon_2_minni.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

FELLABÆR

Ráðhús /HEF     
Aldursskeið körlum kjörið
komið er nú hjá þér.
Fertugum eykst þér fjörið
ég fann það á sjálfum mér.
 
Bókakaffi
Sjálfslýsing
Mér til gleði matast ég
því megrunin er hættuleg.
Leiðis hverskyns líkamsrækt
og líður best að vinna hægt.
 
Frumherji
Fordinn fríski
Fordinn minn er bestur bíla
ber af öllum hér.
Æðisgenginn eins og píla
yfir landið fer.
 
Út úr gluggum, skúmaskotum
skima ástfangnar.
Á hann stara augum votum
yngismeyjarnar.
 
Víst ég þekki meyju marga
sem mundi fara úr,
og meydóminum fegin farga
fyrir ökutúr.
 
 
DREIFBÝLI
 
Hallormsstaður              
Baráttusöngur skógarbænda
Áfram skal ótrauður halda
elja mín seint verður metin
þó árlega afköst og tekjur
upp verði slitin og étin.
Það er göfugt að græða landið
og gleyma daglegu brauði
ganga svangur til sængur
og safna ekki miklum auði.
 
Það er göfugt að vera góður
og geyma ekki digra sjóði
bera sitt ok með brosi
og bölva aðeins í hljóði.
Ætíð auðmjúkur standa
undir lífsbyrði þungri.
Dásama dagsins annir
og deyja sáttur úr hungri.
 
 
Vaðbrekka        
Dalurinn minn
Frið og yndi finn ég best
fram í dalnum grænum
og alltaf hlýnar hjartað mest
heima í gamla bænum.
 
 
Á hreindýraslóðum       
Auglýsing af Jökuldal
Auglýst skal núna í örfáum línum
allskonar heillandi matarval.
Almennings freista með afurðum sínum
áræðnir bændur á Jökuldal.
 
Hafirðu áhuga á hreindýraketinu
í hátíðarveislu til ábætis,
réttast er þá að reyna á Netinu:
rudolf@gámur.is
 

 

 
Advertisement