Fyrir gesti
Fréttir
Snertisafn, Sumarblót og kvöldopnun | Snertisafn, Sumarblót og kvöldopnun |
|
|
| mánudagur, 21 júní 2010 | |
|
KVÖLDOPNUN
Í sumar (14. júní – 15. ágúst) verður opnunartími
verulega
lengdur á safninu. Mánudaga til fimmtudaga verður opið til 21 á kvöldin
og er
það gert til að koma til móts við þann fjölda ferðamanna sem koma í
Egilsstaði
síðla dags til næturdvalar, borða hér kvöldverð og vantar síðan oft
einhverja
afþreyingu að honum loknum.
SUMARBLÓT
Á þriðjudagskvöldum á tímabilinu 29. júní til 10.
ágúst
verður boðið upp á dagskrá fyrir gesti sem við kjósum að kalla
Sumarblót. Gestir
eru fræddir um líf og hefðir Íslendinga áður fyrr á þorranum, fá innsýn í
heimkynni fólks, hvernig tekið var á móti þorra og hvaða merkingu sá
árstími
hafði fyrir marga. Einnig fylgir fróðleikur um þorrablót og gestir læra
einfaldan vikivaka. Í lokin er svo boðið upp á hákarl og harðfisk og að
því
loknu skoða gestir safnið.
Dagskráin hefst kl. 19.30, verð er 1.000 kr. fyrir
fullorðna
og 600 kr. fyrir börn yngri en 16 ára og ellilífeyrisþega.
SNERTISAFN
Í kjallara Safnahússins hefur verið sett upp
snertisafn sem
er fyrir alla, unga sem aldna, sem vilja snerta hluti og prófa
safngripina.
|