Skip to content
Þú er hér: Heim arrow Fyrir gesti arrow Fréttir arrow Starfsmaður óskast
Starfsmaður óskast Prenta Rafpóstur
fimmtudagur, 08 júlí 2010
Minjasafn Austurlands óskar eftir starfsmanni í 100% starf í 11 mánuði eða eftir nánara samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Verkefni

Um er að ræða fjarvinnsluverkefni fyrir Þjóðminjasafn Íslands. Markmið þess er að bæta ítarskráningu munasafns í menningarsögulega gagnasafninu Sarpi með því að bæta inn upplýsingum úr lykilritum um safnkost Þjóðminjasafnsins.

Hæfniskröfur

  • ·         Góð íslenskukunnátta
  • ·         Krafist er vélritunarhraða, lágmark 50 orð á mínútu.
  • ·         Háskólamenntun sem nýtist í starfi æskileg.
  • ·         Reynsla af textavinnslu nauðsynleg.
  • ·         Skipulagshæfileikar og sjálfstæði í vinnubrögðum.

 

Launakjör eru í samræmi við samning Fræðagarðar og Launanefndar sveitarfélaga eða annarra sambærilegra kjarasamninga.
Nánari upplýsingar gefur Elfa Hlín í síma 471-1412 eða í tölvupósti Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það .
Umsóknir skulu berast fyrir þriðjudaginn 20. júlí á Laufskóga 1, 700 Egilsstaðir.

 

 
Advertisement