Aðalsýning | Aðalsýning |
|
|
| miðvikudagur, 09 apríl 2008 | |
|
Sýningin Sveitin og þorpið var opnuð á vordögum 2006. Hönnuður var Björn G. Björnsson hjá List og sögu, sýningarstjóri var Elfa Hlín Pétursdóttir Fyrri hluti sýningarinnar lýsir mannlífi í sveitum á fyrri tíð, þegar hver sveitabær var sjálfstæð eining, þar sem nær allt sem heimilið þarfnaðist var unnið og útbúið. Á hverju heimili voru framleidd og unnin matvæli, föt voru saumuð, fólk ræktaði landið, það hirti búpening sinn og hlaut þar sína fyrstu menntun. Síðari hlutinn greinir frá þeirri breytingu sem varð þegar þéttbýli tók að myndast við brúna yfir Lagarfljót og Egilsstaðir urðu til. Því fylgdi ýmis nýbreytni, þar á meðal aukin þjónusta og meiri sérhæfing. Áhersla er lögð á sérkenni svæðisins, bæði náttúrleg, landfræðileg og menningarleg. Þá eru til sýnis austfirskir munir sem fengnir hafa verið að láni frá Þjóðminjasafni Íslands. Textar sýningarinnar. Myndir af sýningunni má sjá hér. Mörg hundruð safngripir eru til sýnis og er hluta þeirra gerð skil á textaspjöldum sem gestir geta tekið og lesið sér til frekari upplýsinga.
|