|
miðvikudagur, 07 júlí 2004 |
|
Um 1950 reisti Jóhannes Kjarval sér lítið sumarhús í fögrum hvammi við Selfljót í landi Ketilsstaða í Hjaltastaðaþinghá. Dvaldi hann þar lengur eða skemur næstu 20 sumur og málaði. Undir það síðasta, eða 1969, sigldi Kjarval hina frægu ferð sína í seglbátnum Gullmávinum úr hvamminum til Borgarfjarðar eystri. Byggðu verkamenn þá skýli fyrir bátinn hjá sumarhúsinu og er báturinn enn varðveittur þar.
|