Skip to content
Þú er hér: Heim arrow Fyrir gesti arrow Viðburðir
Birta mánuð
Birta mánuð
Birta allt
Birta allt
Birta viku
Birta viku
Birta dag
Birta dag
Flokkar
Flokkar
Leit
Leit

Viðburður: 'Sumarblót'

Lifandi safn
Dagsetning: Þriðjudagur, Júní 29, 2010 At 19:30
Tímalengd: 1 Klukkustund 30 Mínútur
Endurtaka viðburð: Endurtaka alla Þriðjud. til Ágúst 10, 2010

Á þriðjudagkvöldum á tímabilinu 29. júní til 10. ágúst verður boðið upp á dagskrá fyrir gesti sem við kjósum að kalla Sumarblót. Gestir eru fræddir um líf og hefðir Íslendinga áður fyrr á þorranum, fá innsýn í heimkynni fólks, hvernig menn tóku á móti þorra og hvaða merkingu sá árstími hafði fyrir marga. Einnig fylgir fróðleikur um þorrablót og gestir læra einfaldan vikivaka. Í lokin er svo boðið upp á hákarl og harðfisk og að því loknu skoða gestir safnið.

Dagskráin hefst kl. 19.30 á þriðjudögum og er verðið 1000 kr fyrir fullorðna og 600 kr. fyrir börn yngri en 16 ára og ellilífeyrisþega (67+). Afsláttur er fyrir hópa (10+). Æskilegt er að skrá sig fyrirfram en það er ekki skylda. Sími 471-1412.vs225-bastofa_inni.jpg



Leita í dagatali


Advertisement