Skip to main content

Vel heppnaður afmælisfagnaður

26. apríl 2016

Um 100 manns lögðu leið sína í Safnahúsið á sumardaginn fyrsta en þá stóðu söfnin þrjú fyrir afmælisfagnaði og opnu húsi.

Tilefni hátíðahaldanna voru að árið 2016 eru 60 ár liðin frá stofnun Bókasafns Hérðasbúa, 40 ár frá stofnun Héraðsskjalasafns Austfirðinga og 20 ár frá því að Safnahúsið var formlega opnað. Flutt voru ávörp, stúlknakórinn Liljurnar tók lagið og gestum boðið að þyggja veitingar, skoða sýningar og kynna sér starfsemi safnanna.

Kristrún Jónsdóttir (Dúrra) sem starfaði á Bókasafninu um árabil sagði frá störfum sínum á safninu, flutningum milli húsa í bænum og bókum sem alltaf týndust. Steinunn Kristjánsdóttir, fyrsti safnstjóri Minjasafnsins, lýsti flutningum safnkosts Minjasafnsins úr geymslum í ný húsakynni í Safnahúsinu og starfseminni fyrstu árin í húsinu. Þá sagði Arndís Þorvaldsdóttir sem hefur starfað á Héraðsskjalasafninu um árabil, skemmtilegar sögur úr starfi safnsins. 

Í tilefni dagsins settu starfskonur Minjasafnsins upp sýningu sem ber yfirskriftina 20 ár í Safnahúsi en hún samanstendur af munum úr öllum söfnunarflokkum Minjasafnsins og er ætlað að sýna fjölbreytileika safnkostsins. 

Myndir: Gunnar Gunnarsson og Jóhanna Hafliðadóttir

20160421 Safnahus2
20160425 Safnahus1
Safnahus Afmaeli April16 0023
20162104 Safnahus3
20160421 Safnahus Johanna2
20160421 Safnahus Johanna

Síðustu fréttir

Öskupoka- og bolluvandasmiðja
12. febrúar 2024
Það var handagangur í öskjunni og líf í tuskunum í Safnahúsinu á dögunum þegar Minjasafnið, Bókasafn Héraðsbúa og Soroptimistaklúbbur Austurlands stóðu saman að öskupoka- og bolluvandasmiðju. Þar v...
Minjasafnið hlýtur styrki úr Safnasjóði.
26. janúar 2024
Á dögunum var úthlutað styrkjum úr aðalúthlutun Safnasjóðs við hátíðlega athöfn húsnæði Listasafns Íslands í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Minjasafn Austurland hlaut tveggja milljóna króna styrk í v...
Fjölbreytt afmælisár að baki.
10. janúar 2024
Nú þegar enn eitt árið hefur runnið sitt skeið er ekki úr vegi að staldra við og líta yfir farinn veg. Nýliðið ár var Minjasafni Austurlands gott, starfsemin var fjölbreytt og gestafjöldi með mesta...