Skip to content
Þú er hér: Heim arrow Dauðir rísa
Dauðir rísa ... úr gröfum Skriðuklausturs Prenta Rafpóstur
miðvikudagur, 29 apríl 2009
plakat.jpg

 

Minjasafn Austurlands, í samvinnu við Skriðuklaustursrannsóknir hefur sett upp sýninguna ,,Dauðir rísa ... úr gröfum Skriðuklausturs“. Sýningin  fjallar um fólkið sem grafið var á Skriðklaustri frá tímum klaustursins (1493-1554) og fram á 18. öld.  Á sýningunni eru m.a. sýndar teikningar af beinagrindum hinna framliðnu eins og þær lágu í gröfum sínum. Þá eru til sýnis tvær beinagrindur, kistuleifar og munir sem fundist hafa í kistum. Í tengslum við þetta var einnig gefin út sýningaskrá með fyrrnefndum teikningum. Þar má jafnframt finna greinar sem fjalla um fornleifauppgröftinn að Skriðuklaustri og niðurstöður hans sem og grein um íslenska grafarsiði og viðhorf til dauðans fyrr og nú.

Með sýningunni náum við vonandi að kynnast örlítið hinum löngu liðna hugarheimi íslenskra miðalda og minnumst einnig fólksins sem á Skriðuklaustri var jarðað þó að lífshlaup þeirra sé okkur enn að mestu hulið.

Sýningarhönnuður er Björn G. Björnsson hjá List og Sögu ehf. sem einnig hannaði grunnsýningu safnsins, ,,Sveitin og þorpið”. Fyrir hönd Skriðuklaustursrannsókna kom að sýningargerðinni verkefnisstjórinn og fornleifafræðingurinn Steinunn Kristjánsdóttir.

Hér má nálgast teikningar af beinagrindum.

Hér má skoða textaspjöldin á sýningunni.

beinagrind.jpg

daudir_risa_syning.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 
Advertisement